Kristrún 的个人资料Af Karíusi og Baktusi í ...照片日志列表 工具 帮助

Birgisdóttir Kristrún

第 1 张,共 17 张

Af Karíusi og Baktusi í Hong Kong

11月25日

Gestir

 
Það hlýnaði loksins í Hong Kong rétt í þann mund sem Sigrún, Óli og Vigga komu í bæinn. Við Jóhanna erum búnar að flengjast með þau til Kína og til baka og allir sáttir með ferðalagið höldum við. Myndasmiðirnir voru ferðalangarnir og ég hef ekki lagt mig fram um að fá kópíur ennþá en videokameran var með í för og von á afrakstri.
 
Myndaveggurinn minn er ekkert skakkur!! Það er bara linsan sem breytir hlutföllunum á myndunum í jaðrinum og beygir línuna, drasl linsa!. Og varðandi þríeykið, Tinnu, Gylfa og Greip - þá er myndin af ykkur búin að vera uppi á vegg síðan í október 2007, áður en formlegi myndaveggurinn varð til. Ég vil fá almennilega útprentaða mynd í jólakortinu og þá fer þessi upp á vegg líka. Við verðum á Íslandi svo það má senda jólakortin í Merkigil 31, 603 Ak.
 
Bjarki, hér er linkurinn http://www.the-digital-picture.com/Reviews/Canon-EF-24-105mm-f-4-L-IS-USM-Lens-Review.aspx - bara svo að það verði enginn misskilningur!
 

 og hér er sönnunargagnið;

 

 

11月19日

Ísssssskalt!

 
Það er búið að vera ísssskalt í Hong Kong síðustu daga. Hitastigið hefur verið niður undir 10 gráðurnar og það bítur ægilega í rakanum. Ég fann ofninn en hann virkar ekki alveg nógu vel svo við Jóhanna höfum klætt af okkur kuldann inni sem úti. Sigrún, Óli og Vigga koma á morgun með meira af hlýjum fötum.
 

Við erum auðvitað búnar að vera á fullu að gera fínt fyrir gestina. Eitt af því sem ég lét verða af er að koma nánustu fjölskyldumeðlimum og einhverjum vinum upp á vegg, þetta er byrjunin. Mér finnst þetta svo ægilega flott að nú verða jafnvel fleiri veggir teknir undir ljósmyndir. Ég tala nú ekki um ef að ég fengi nú linsuna í jólagjöf...usssss!

 

11月15日

Við

 
Iðunn tengdamamma á afmæli í dag. Til hamingju með daginn, gaman að hitta ykkur á Skypinu.
 
Jóhanna verður spennt um leið og hún heyrir Skype hringinuna, þá veit hún að það er von á einhverjum á skjáinn - gæjalegt!
 
Hér eru myndir sem Katrín Brynja tók af okkur í sumar. Ég minni minn elskulega á að Katrín getur leiðbeint mér að taka svona myndir ef ég fengi nú ákveðna linsu í jólagjöf ;)
 

 

11月14日

Myndband mánaðarins

 

Við Jóhanna erum sem sagt komnar heim til Hong en það uppgötvaðist að við höfðum ekki lengur landvistarleyfi í Kína! Það varð smá panikk sérstaklega þegar fyrir lá að sektin við að vera of lengi væri 165.000 ISK fyrir okkur báðar. Þá voru góð ráð dýr. Það var reyndar ó-ráð sem réði því að ég fór með hana yfir landamærin grenjandi og illa fyrir kallaða. Það varð þó til þess að landamæravörðurinn tók ekki eftir því að við vorum búinar að vera eina tíu daga framyfir! Ég reiknaði mér 165.000 kallinn í gróða og fór í bæinn ;)

 

Myndbandið er hér, nokkuð vel í það lagt þó ég segi sjálf frá en yfirleitt hendi ég myndbrotunum bara saman og spái ekkert í það. En ég sá svo voðalega flott myndband hjá Gauta og varð að sjá hvort ég gæti komist með tærnar þar sem hann hefur hælana. Ég byrjaði á öfugum enda og lenti í ógöngum og þurfti að byrja upp á nytt en hér er þetta allaveganna, dálítið væmið en ókeypis þemun eru heldur síðri en þau sem maður getur fjárfest í.

 

 

 

11月8日

Tennur!

 
Jóhanna er komin með tvær tennur í neðri góm. Í dag borðaði hún líka kjöt í fyrsta skiptið. Hún er farin að taka á rás en hún skríður um eins og selur.
 
Saga kom í heimsókn og þær frænkur voru ofurkrúttlegar saman þar sem Saga vissi greinilega að hún er stóra frænkan og Jóhanna sú litla. Þyngdarmunurinn og stærðarmunurinn er hinsvegar óverulegur en þær voru voða góða og sætar saman.
 

Saga gefur Jóhönnu epli.

 
11月3日

Litla lirfan

 
Tengdó brugðust fljótt við áskoruninni um myndir af Bjarka, 1:0 í augnablikinu fyrir tengdafjölskyldunni.
 
Þessa sáum við úti í runna og það náðist mynd af henni á símann hennar Siggu, lirfan var farin áður en við náðum almennilegri mynd af henni svo líklega er hún ekki lengur lirfa heldur skrautfiðrildi. Ég veit ekki hvaða tegund þetta er en einhver veit það kannski (lesist Hildur)? Það er mjög mikið af fallegum skrautfiðrildum hér sem ég veit því miður engin deili á.
 

 
10月30日

Sofnar sjálf

 
Jæja Sigrun, þá er Jóhanna búin að sofna sjálf nokkrum sinnum. Þetta verður orðið fullkomið þegar þú kemur.
Systa, ég er búin að kenna Jóhönnu dönsku en ég sendi hana til þín til þess að læra um allt það stærsta og mesta í Kína. Ég held að Landafræði 2. hefti hafi ekki verið til í Gagganum þegar ég var þar, mér finnst eins og að ég hafi aldrei nokkurntíman lesið þessi fræði. 
 
Í kvöld vorum við í nostalgíukasti og átum (já átum) kjötsúpu með pylsubitum og nautakjötsbitum, eiginlega alveg næstum því eins og í gamla daga.
 
Ég óska hér með eftir myndum af mér og Bjarka þegar við vorum lítil, ég á bara þessa einu.
 
 

Finnið fimm villur

10月26日

6 mánaða

 
Jóhanna er 6 mánaða í dag. Hún hefur dvalið meiripartinn af ævinni fjarri heimili sínu í Hong Kong, aðallega hér í Kína. Hún er 8,5 kg samkvæmt baðvoginni hennar Siggu og líklega tæplega 70 cm á lengdina. Hún er farin að ferðast aðeins um gólfin, aðallega á maganum en fer upp á hnéin og tærnar. Hún er glaðvær og heilbrigð og skilur auðveldlega ensku, frönsku, kínversku, þýsku, spænsku, íslensku og Senegalísku. Við erum ákaflega stolt af henni.
 
 
Gólfæfingar

 
 

Allt er fullkomið!

KB

 
  
10月23日

Nýjasta tíska í Gangkou

 
Bjarki var hér um helgina en þá nýtum við krafta hans til hins ýtrasta í bátnum. Ég held að honum þyki skemmtilegast að kaupa inn, mér sýnist það a.m.k á lagerstöðunni í Brúski sjálfum. Endalaust er nú til af köplum og skrúfum og skífum og verkfærum sem ég hef ekki hugmynd um hvað eiga að notast í. Hugsanlega væri ég jafn kaupóð ef að verðin á mínu áhugasviði væru eitthvað svipuð en það er skemmst frá því að segja að í búðum eins og þessari er hægt að gera mjög hagstæð kaup.
 

Þetta tiltekna horn minir mig á kjallarann í Kaupfélaginu á Hauganesi forðum.

 
 
Ég er enn að passa en húsráðendur koma heim í dag eða á morgun. Ég var heldur græn af öfund þegar í ljós kom að þau nutu nokkurra daga í San Fransisco!! Ég bíð spennt eftir fréttum þaðan. Drengurinn er búinn að vera eins og ljós auðvitað og Jóhanna skríkir og hlær við öllu sem hann gerir. Uppáhaldsiðja hennar þessa dagana er að borða bækur.  
 
Hér borðar Jóhanna bók drengsins um Kisu litlu
 
 
Og hér kemur hún auga á heimilisköttinn sem hún fylgist vandlega með.
 
 
Annars allt gott og áætluð heimkoma Brúsks er á næstu þremur vikum! Við sjáum svo til með það. Starri og Freyja komu hér í vikunni og lögðu sitt af mörkum, kærar þakkir. Starri var handlangari og Freyja barnapía og bakari, það var gott og gaman að fá þau aðeins.
KB