| Kristrún 的个人资料Af Karíusi og Baktusi í ...照片日志列表 | 帮助 |
|
10月23日 Nýjasta tíska í GangkouBjarki var hér um helgina en þá nýtum við krafta hans til hins ýtrasta í bátnum. Ég held að honum þyki skemmtilegast að kaupa inn, mér sýnist það a.m.k á lagerstöðunni í Brúski sjálfum. Endalaust er nú til af köplum og skrúfum og skífum og verkfærum sem ég hef ekki hugmynd um hvað eiga að notast í. Hugsanlega væri ég jafn kaupóð ef að verðin á mínu áhugasviði væru eitthvað svipuð en það er skemmst frá því að segja að í búðum eins og þessari er hægt að gera mjög hagstæð kaup.
Þetta tiltekna horn minir mig á kjallarann í Kaupfélaginu á Hauganesi forðum. Ég er enn að passa en húsráðendur koma heim í dag eða á morgun. Ég var heldur græn af öfund þegar í ljós kom að þau nutu nokkurra daga í San Fransisco!! Ég bíð spennt eftir fréttum þaðan. Drengurinn er búinn að vera eins og ljós auðvitað og Jóhanna skríkir og hlær við öllu sem hann gerir. Uppáhaldsiðja hennar þessa dagana er að borða bækur.
Hér borðar Jóhanna bók drengsins um Kisu litlu
Og hér kemur hún auga á heimilisköttinn sem hún fylgist vandlega með.
Annars allt gott og áætluð heimkoma Brúsks er á næstu þremur vikum! Við sjáum svo til með það. Starri og Freyja komu hér í vikunni og lögðu sitt af mörkum, kærar þakkir. Starri var handlangari og Freyja barnapía og bakari, það var gott og gaman að fá þau aðeins.
KB
评论 (3)
引用通告此日志的引用通告 URL 是: http://strullababe.spaces.live.com/blog/cns!A94F3A3344254E40!1507.trak 引用此项的网络日志
|
|
|