| Kristrún's profileAf Karíusi og Baktusi í ...PhotosBlogLists | Help |
|
October 02 VideoÉg setti saman nokkur video og ljósmyndir bara frá því í gær og fyrradag. Við fórum út að borða í tilefni afmælisins og hittum Huldu, Sögu og Starra. Það er ekki oft sem frænkurnar hafa hist og í fyrsta skipti náði ég þeim á video saman. Aumingja Jóhanna heldur örugglega að hún eigi systur en það eru stórir speglar bæði í svefnherberginu og vinnuherberginu. Jóhanna gleðst mjög yfir félagsskapnum og kjassar spegilmyndina hvenær sem tækifæri gefst.
Tónlistarvalið er í anda þess sem við Jón ólumst upp við, ofbeldisóður Halla og Ladda. Tónlistarvalið helgast reyndar líka af því að Youtube gerir engar athugasemdir þótt maður notist við íslenska tónlist en það verður allt vitlaust ef að ég notast við erlenda tónlist og þeir hóta að loka reikningnum og ég veit ekki hvað og hvað.
Á morgun förum við aftur til Kína.
Allt er fullkomið :)
Afmælið er búið svo að ég tek niður skrautið. Comments (3)
TrackbacksThe trackback URL for this entry is: http://strullababe.spaces.live.com/blog/cns!A94F3A3344254E40!1406.trak Weblogs that reference this entry
|
|
|