| Kristrún 的个人资料Af Karíusi og Baktusi í ...照片日志列表 | 帮助 |
|
11月25日 GestirÞað hlýnaði loksins í Hong Kong rétt í þann mund sem Sigrún, Óli og Vigga komu í bæinn. Við Jóhanna erum búnar að flengjast með þau til Kína og til baka og allir sáttir með ferðalagið höldum við. Myndasmiðirnir voru ferðalangarnir og ég hef ekki lagt mig fram um að fá kópíur ennþá en videokameran var með í för og von á afrakstri.
Myndaveggurinn minn er ekkert skakkur!! Það er bara linsan sem breytir hlutföllunum á myndunum í jaðrinum og beygir línuna, drasl linsa!. Og varðandi þríeykið, Tinnu, Gylfa og Greip - þá er myndin af ykkur búin að vera uppi á vegg síðan í október 2007, áður en formlegi myndaveggurinn varð til. Ég vil fá almennilega útprentaða mynd í jólakortinu og þá fer þessi upp á vegg líka. Við verðum á Íslandi svo það má senda jólakortin í Merkigil 31, 603 Ak.
Bjarki, hér er linkurinn http://www.the-digital-picture.com/Reviews/Canon-EF-24-105mm-f-4-L-IS-USM-Lens-Review.aspx - bara svo að það verði enginn misskilningur!
og hér er sönnunargagnið;
11月19日 Ísssssskalt!Það er búið að vera ísssskalt í Hong Kong síðustu daga. Hitastigið hefur verið niður undir 10 gráðurnar og það bítur ægilega í rakanum. Ég fann ofninn en hann virkar ekki alveg nógu vel svo við Jóhanna höfum klætt af okkur kuldann inni sem úti. Sigrún, Óli og Vigga koma á morgun með meira af hlýjum fötum.
Við erum auðvitað búnar að vera á fullu að gera fínt fyrir gestina. Eitt af því sem ég lét verða af er að koma nánustu fjölskyldumeðlimum og einhverjum vinum upp á vegg, þetta er byrjunin. Mér finnst þetta svo ægilega flott að nú verða jafnvel fleiri veggir teknir undir ljósmyndir. Ég tala nú ekki um ef að ég fengi nú linsuna í jólagjöf...usssss!
11月15日 ViðIðunn tengdamamma á afmæli í dag. Til hamingju með daginn, gaman að hitta ykkur á Skypinu.
Jóhanna verður spennt um leið og hún heyrir Skype hringinuna, þá veit hún að það er von á einhverjum á skjáinn - gæjalegt!
Hér eru myndir sem Katrín Brynja tók af okkur í sumar. Ég minni minn elskulega á að Katrín getur leiðbeint mér að taka svona myndir ef ég fengi nú ákveðna linsu í jólagjöf ;)
11月14日 Myndband mánaðarins
Við Jóhanna erum sem sagt komnar heim til Hong en það uppgötvaðist að við höfðum ekki lengur landvistarleyfi í Kína! Það varð smá panikk sérstaklega þegar fyrir lá að sektin við að vera of lengi væri 165.000 ISK fyrir okkur báðar. Þá voru góð ráð dýr. Það var reyndar ó-ráð sem réði því að ég fór með hana yfir landamærin grenjandi og illa fyrir kallaða. Það varð þó til þess að landamæravörðurinn tók ekki eftir því að við vorum búinar að vera eina tíu daga framyfir! Ég reiknaði mér 165.000 kallinn í gróða og fór í bæinn ;)
Myndbandið er hér, nokkuð vel í það lagt þó ég segi sjálf frá en yfirleitt hendi ég myndbrotunum bara saman og spái ekkert í það. En ég sá svo voðalega flott myndband hjá Gauta og varð að sjá hvort ég gæti komist með tærnar þar sem hann hefur hælana. Ég byrjaði á öfugum enda og lenti í ógöngum og þurfti að byrja upp á nytt en hér er þetta allaveganna, dálítið væmið en ókeypis þemun eru heldur síðri en þau sem maður getur fjárfest í.
11月8日 Tennur!Jóhanna er komin með tvær tennur í neðri góm. Í dag borðaði hún líka kjöt í fyrsta skiptið. Hún er farin að taka á rás en hún skríður um eins og selur.
Saga kom í heimsókn og þær frænkur voru ofurkrúttlegar saman þar sem Saga vissi greinilega að hún er stóra frænkan og Jóhanna sú litla. Þyngdarmunurinn og stærðarmunurinn er hinsvegar óverulegur en þær voru voða góða og sætar saman.
Saga gefur Jóhönnu epli. 11月3日 Litla lirfanTengdó brugðust fljótt við áskoruninni um myndir af Bjarka, 1:0 í augnablikinu fyrir tengdafjölskyldunni.
Þessa sáum við úti í runna og það náðist mynd af henni á símann hennar Siggu, lirfan var farin áður en við náðum almennilegri mynd af henni svo líklega er hún ekki lengur lirfa heldur skrautfiðrildi. Ég veit ekki hvaða tegund þetta er en einhver veit það kannski (lesist Hildur)? Það er mjög mikið af fallegum skrautfiðrildum hér sem ég veit því miður engin deili á.
10月30日 Sofnar sjálfJæja Sigrun, þá er Jóhanna búin að sofna sjálf nokkrum sinnum. Þetta verður orðið fullkomið þegar þú kemur.
Systa, ég er búin að kenna Jóhönnu dönsku en ég sendi hana til þín til þess að læra um allt það stærsta og mesta í Kína. Ég held að Landafræði 2. hefti hafi ekki verið til í Gagganum þegar ég var þar, mér finnst eins og að ég hafi aldrei nokkurntíman lesið þessi fræði.
Í kvöld vorum við í nostalgíukasti og átum (já átum) kjötsúpu með pylsubitum og nautakjötsbitum, eiginlega alveg næstum því eins og í gamla daga.
Ég óska hér með eftir myndum af mér og Bjarka þegar við vorum lítil, ég á bara þessa einu.
Finnið fimm villur 10月26日 6 mánaðaJóhanna er 6 mánaða í dag. Hún hefur dvalið meiripartinn af ævinni fjarri heimili sínu í Hong Kong, aðallega hér í Kína. Hún er 8,5 kg samkvæmt baðvoginni hennar Siggu og líklega tæplega 70 cm á lengdina. Hún er farin að ferðast aðeins um gólfin, aðallega á maganum en fer upp á hnéin og tærnar. Hún er glaðvær og heilbrigð og skilur auðveldlega ensku, frönsku, kínversku, þýsku, spænsku, íslensku og Senegalísku. Við erum ákaflega stolt af henni.
Gólfæfingar
Allt er fullkomið! KB 10月23日 Nýjasta tíska í GangkouBjarki var hér um helgina en þá nýtum við krafta hans til hins ýtrasta í bátnum. Ég held að honum þyki skemmtilegast að kaupa inn, mér sýnist það a.m.k á lagerstöðunni í Brúski sjálfum. Endalaust er nú til af köplum og skrúfum og skífum og verkfærum sem ég hef ekki hugmynd um hvað eiga að notast í. Hugsanlega væri ég jafn kaupóð ef að verðin á mínu áhugasviði væru eitthvað svipuð en það er skemmst frá því að segja að í búðum eins og þessari er hægt að gera mjög hagstæð kaup.
Þetta tiltekna horn minir mig á kjallarann í Kaupfélaginu á Hauganesi forðum. Ég er enn að passa en húsráðendur koma heim í dag eða á morgun. Ég var heldur græn af öfund þegar í ljós kom að þau nutu nokkurra daga í San Fransisco!! Ég bíð spennt eftir fréttum þaðan. Drengurinn er búinn að vera eins og ljós auðvitað og Jóhanna skríkir og hlær við öllu sem hann gerir. Uppáhaldsiðja hennar þessa dagana er að borða bækur.
Hér borðar Jóhanna bók drengsins um Kisu litlu
Og hér kemur hún auga á heimilisköttinn sem hún fylgist vandlega með.
Annars allt gott og áætluð heimkoma Brúsks er á næstu þremur vikum! Við sjáum svo til með það. Starri og Freyja komu hér í vikunni og lögðu sitt af mörkum, kærar þakkir. Starri var handlangari og Freyja barnapía og bakari, það var gott og gaman að fá þau aðeins.
KB
10月16日 KínverjarVið Jóhanna erum að verða alvöru kínverjar, ég er meira að segja komin með kínverskt símanúmer. Hef ekki farið heim til HK síðan ég man ekki hvenær og við verðum hér í að minnsta kosti viku í viðbót. Húsráðendur héldu í ferðalag og við Jóhanna tókum að okkur að passa prinsinn á meðan. Það gengur vel og auðvelt að semja við 4 ára. Fyrsti samningurinn varðaði súkkulaðiköku sem var bökuð í gær og borðuð með bestu lyst.
Það er ekki mikið að frétta úr sveitinni en Jóhanna dafnar vel og er farin að brölta upp á hnéin, borðar vel og er að læra að sofna sjálf og markmiðið er að ná því áður en Sigrún Sóley kemur ;)
Það gengur vel með Brúsk en ég er alveg hætt að gefa nokkuð úr um brottfarardag frá Kína. Það er allt út um allt en sér fyrir endan á flestu. Ég get bara ekki tekið myndir í ruslinu og set inn myndir þegar tiltektin verður hafin.
KB
10月5日 Eina, tvær óskirEf ég ætti eina, tvær óskir núna þá myndi ég óska mér Óskar Pétursson í lakkvinnuna, tengdapabba, Jónas frænda og Guðmund í lokafrágang á smíðavinnu, Jón bróður í tölvumálin, Jóa í rafmagnið, Gunna frænda í verkstjórnina, pabba í stressið og mömmu og tengdó í að hella uppá og þrífa. Þá væri vika eftir!
10月2日 VideoÉg setti saman nokkur video og ljósmyndir bara frá því í gær og fyrradag. Við fórum út að borða í tilefni afmælisins og hittum Huldu, Sögu og Starra. Það er ekki oft sem frænkurnar hafa hist og í fyrsta skipti náði ég þeim á video saman. Aumingja Jóhanna heldur örugglega að hún eigi systur en það eru stórir speglar bæði í svefnherberginu og vinnuherberginu. Jóhanna gleðst mjög yfir félagsskapnum og kjassar spegilmyndina hvenær sem tækifæri gefst.
Tónlistarvalið er í anda þess sem við Jón ólumst upp við, ofbeldisóður Halla og Ladda. Tónlistarvalið helgast reyndar líka af því að Youtube gerir engar athugasemdir þótt maður notist við íslenska tónlist en það verður allt vitlaust ef að ég notast við erlenda tónlist og þeir hóta að loka reikningnum og ég veit ekki hvað og hvað.
Á morgun förum við aftur til Kína.
Allt er fullkomið :)
Afmælið er búið svo að ég tek niður skrautið. 9月30日 BreytingarÓtrúlegt hvað ungabörn breytast mikið á stuttum tíma. Ég var að horfa á þetta video af Jóhönnu frá því í maí. Þessi sama ögn þykist núna kunna að labba og vill helst standa í lappirnar á gólfinu. Hún horfir á heilan þátt af Simpsons og Friends með athygli og fylgist með lestri Tralla ef hún fær að smakka á hverri síðu. Hún dansar við Michael Jackson og rifnar úr monti þegar hún er ,,stór,,. Hún situr nánast óstudd og getur hnoðast um á maganum nokkra metra. Ótrúlegar breytingar á 5 mánuðum!
Þessir hafa ekkert breyst, ég fæ bara ekki leið á þessari útsetningu af Hallelujah. Heimsins mestu kallakrútt.
Á morgun er afmæli Kínaveldisins og ég skreyti bloggið að sjálfsögðu að því tilefni. Kínverjarnir eru búinir að skreyta hvern ljósastaur og hvert götuhorn og allt er voðalega fínt hjá þeim, aldrei þessu vant.
Ó hvað það er gott að koma heim!
KB
9月29日 TölvuvandræðiÞá er HP tölvan mín komin til himna vonandi. Hún þjónaði ágætlega fyrstu tvö árin en þá fór að halla undan fæti. Ég hef því miður tæplega ástæðu til að kaupa nýja fartölvu í bili enda á ég mjög öfluga borðtölvu heima svo núna notast ég við lánstölvu.
Við Jóhanna erum á heimleið, komum til Hong Kong líklega á morgun. Smá hlé frá Kína þar sem vinnumennirnir fara í 4 daga frí nú um helgina. Flestir Kínverjar fara í 9 daga frí í tilefni afmælisins þann 1. okóber.
Báturinn hefur nú verið sprautaður að mestu en það þarf vitanlega að lappa upp á eitthvað og gera aftur enda ekkert verið fullkomið í fyrsta í þessu verkefni. En þetta kemur og við erum komin með dagsetningu sem við ímyndum okkur að geti staðist. Þá er auðvitað ekki öllu lokið en við verðum að hafa eitthvað að gera í vetur ;)
Jóhanna er orðin 5 mánaða, heilbrigð, geðgóð og heldur háð mömmu sinni finnst pabbanum.
Hér má segja að við kíkjum aðeins í pakkann ;) en vonandi verður Brúskur afhjúpaður í október! 9月24日 Jóhanna siturMeð því að senda Jóni bróður myndbandið og láta hann hlaða því inn á YouTube þá getið þið notið þess að sjá Jóhönnu sitja ;)
Allt gott úr Kínalandinu annars.
9月21日 Jóhanna myndbrot frá septemberErum farin til Kína. Hér er myndband fyrir ömmur og afa og alla hina.
9月18日 Jóhanna lærir að skrifaKannski á maður ekki að segja frá svona og krossa sig í bak og fyrir að það fór ekki á versta veg. EN þetta er bara of fyndið!
Ég var að flýta mér að klára að koma auglýsingu í Fréttablaðið í morgun og Jóhanna mín var eitthvað pirruð á að vera á gólfinu svo hún fékk sínu framgengt og sat í fanginu á mér á meðan ég var í tölvunni. Það var svo ekki fyrr en ég stend upp að ég átta mig á því að Jóhanna mín var að dunda sér við að skrifa á andlitið á sér. Það er ekki von að þið skiljið hvað hún var að skrifa því þetta er auðvitað á kínversku ;)
Auglýsingin fylgir hér með líka en enn og aftur vantar okkur sölumann. Heldur snubbóttari auglýsingin en þessi örfáu orð kostar 7000 kr. að birta í tvö skipti í Fréttablaðinu: Óskum eftir sölumanni. Fullkomið aukastarf fyrir ungan drífandi kennara eða framtaksömu fótboltamömmuna/pabban. Sjálfstætt starf. Vinsamlegast sendið póst á solumaduroskast@gmail.com Allt annað fullkomið, KB
|
|
|