個人檔案Af Karíusi og Baktusi í ...相片部落格清單 工具 說明

Birgisdóttir Kristrún

第 1 張 / 共 17 張

Af Karíusi og Baktusi í Hong Kong

11月19日

Ísssssskalt!

 
Það er búið að vera ísssskalt í Hong Kong síðustu daga. Hitastigið hefur verið niður undir 10 gráðurnar og það bítur ægilega í rakanum. Ég fann ofninn en hann virkar ekki alveg nógu vel svo við Jóhanna höfum klætt af okkur kuldann inni sem úti. Sigrún, Óli og Vigga koma á morgun með meira af hlýjum fötum.
 

Við erum auðvitað búnar að vera á fullu að gera fínt fyrir gestina. Eitt af því sem ég lét verða af er að koma nánustu fjölskyldumeðlimum og einhverjum vinum upp á vegg, þetta er byrjunin. Mér finnst þetta svo ægilega flott að nú verða jafnvel fleiri veggir teknir undir ljósmyndir. Ég tala nú ekki um ef að ég fengi nú linsuna í jólagjöf...usssss!

 

11月15日

Við

 
Iðunn tengdamamma á afmæli í dag. Til hamingju með daginn, gaman að hitta ykkur á Skypinu.
 
Jóhanna verður spennt um leið og hún heyrir Skype hringinuna, þá veit hún að það er von á einhverjum á skjáinn - gæjalegt!
 
Hér eru myndir sem Katrín Brynja tók af okkur í sumar. Ég minni minn elskulega á að Katrín getur leiðbeint mér að taka svona myndir ef ég fengi nú ákveðna linsu í jólagjöf ;)
 

 

11月14日

Myndband mánaðarins

 

Við Jóhanna erum sem sagt komnar heim til Hong en það uppgötvaðist að við höfðum ekki lengur landvistarleyfi í Kína! Það varð smá panikk sérstaklega þegar fyrir lá að sektin við að vera of lengi væri 165.000 ISK fyrir okkur báðar. Þá voru góð ráð dýr. Það var reyndar ó-ráð sem réði því að ég fór með hana yfir landamærin grenjandi og illa fyrir kallaða. Það varð þó til þess að landamæravörðurinn tók ekki eftir því að við vorum búinar að vera eina tíu daga framyfir! Ég reiknaði mér 165.000 kallinn í gróða og fór í bæinn ;)

 

Myndbandið er hér, nokkuð vel í það lagt þó ég segi sjálf frá en yfirleitt hendi ég myndbrotunum bara saman og spái ekkert í það. En ég sá svo voðalega flott myndband hjá Gauta og varð að sjá hvort ég gæti komist með tærnar þar sem hann hefur hælana. Ég byrjaði á öfugum enda og lenti í ógöngum og þurfti að byrja upp á nytt en hér er þetta allaveganna, dálítið væmið en ókeypis þemun eru heldur síðri en þau sem maður getur fjárfest í.

 

 

 

11月8日

Tennur!

 
Jóhanna er komin með tvær tennur í neðri góm. Í dag borðaði hún líka kjöt í fyrsta skiptið. Hún er farin að taka á rás en hún skríður um eins og selur.
 
Saga kom í heimsókn og þær frænkur voru ofurkrúttlegar saman þar sem Saga vissi greinilega að hún er stóra frænkan og Jóhanna sú litla. Þyngdarmunurinn og stærðarmunurinn er hinsvegar óverulegur en þær voru voða góða og sætar saman.
 

Saga gefur Jóhönnu epli.

 
11月3日

Litla lirfan

 
Tengdó brugðust fljótt við áskoruninni um myndir af Bjarka, 1:0 í augnablikinu fyrir tengdafjölskyldunni.
 
Þessa sáum við úti í runna og það náðist mynd af henni á símann hennar Siggu, lirfan var farin áður en við náðum almennilegri mynd af henni svo líklega er hún ekki lengur lirfa heldur skrautfiðrildi. Ég veit ekki hvaða tegund þetta er en einhver veit það kannski (lesist Hildur)? Það er mjög mikið af fallegum skrautfiðrildum hér sem ég veit því miður engin deili á.
 

 
10月30日

Sofnar sjálf

 
Jæja Sigrun, þá er Jóhanna búin að sofna sjálf nokkrum sinnum. Þetta verður orðið fullkomið þegar þú kemur.
Systa, ég er búin að kenna Jóhönnu dönsku en ég sendi hana til þín til þess að læra um allt það stærsta og mesta í Kína. Ég held að Landafræði 2. hefti hafi ekki verið til í Gagganum þegar ég var þar, mér finnst eins og að ég hafi aldrei nokkurntíman lesið þessi fræði. 
 
Í kvöld vorum við í nostalgíukasti og átum (já átum) kjötsúpu með pylsubitum og nautakjötsbitum, eiginlega alveg næstum því eins og í gamla daga.
 
Ég óska hér með eftir myndum af mér og Bjarka þegar við vorum lítil, ég á bara þessa einu.
 
 

Finnið fimm villur

10月26日

6 mánaða

 
Jóhanna er 6 mánaða í dag. Hún hefur dvalið meiripartinn af ævinni fjarri heimili sínu í Hong Kong, aðallega hér í Kína. Hún er 8,5 kg samkvæmt baðvoginni hennar Siggu og líklega tæplega 70 cm á lengdina. Hún er farin að ferðast aðeins um gólfin, aðallega á maganum en fer upp á hnéin og tærnar. Hún er glaðvær og heilbrigð og skilur auðveldlega ensku, frönsku, kínversku, þýsku, spænsku, íslensku og Senegalísku. Við erum ákaflega stolt af henni.
 
 
Gólfæfingar

 
 

Allt er fullkomið!

KB

 
  
10月23日

Nýjasta tíska í Gangkou

 
Bjarki var hér um helgina en þá nýtum við krafta hans til hins ýtrasta í bátnum. Ég held að honum þyki skemmtilegast að kaupa inn, mér sýnist það a.m.k á lagerstöðunni í Brúski sjálfum. Endalaust er nú til af köplum og skrúfum og skífum og verkfærum sem ég hef ekki hugmynd um hvað eiga að notast í. Hugsanlega væri ég jafn kaupóð ef að verðin á mínu áhugasviði væru eitthvað svipuð en það er skemmst frá því að segja að í búðum eins og þessari er hægt að gera mjög hagstæð kaup.
 

Þetta tiltekna horn minir mig á kjallarann í Kaupfélaginu á Hauganesi forðum.

 
 
Ég er enn að passa en húsráðendur koma heim í dag eða á morgun. Ég var heldur græn af öfund þegar í ljós kom að þau nutu nokkurra daga í San Fransisco!! Ég bíð spennt eftir fréttum þaðan. Drengurinn er búinn að vera eins og ljós auðvitað og Jóhanna skríkir og hlær við öllu sem hann gerir. Uppáhaldsiðja hennar þessa dagana er að borða bækur.  
 
Hér borðar Jóhanna bók drengsins um Kisu litlu
 
 
Og hér kemur hún auga á heimilisköttinn sem hún fylgist vandlega með.
 
 
Annars allt gott og áætluð heimkoma Brúsks er á næstu þremur vikum! Við sjáum svo til með það. Starri og Freyja komu hér í vikunni og lögðu sitt af mörkum, kærar þakkir. Starri var handlangari og Freyja barnapía og bakari, það var gott og gaman að fá þau aðeins.
KB
 
 
10月16日

Kínverjar

 
Við Jóhanna erum að verða alvöru kínverjar, ég er meira að segja komin með kínverskt símanúmer. Hef ekki farið heim til HK síðan ég man ekki hvenær og við verðum hér í að minnsta kosti viku í viðbót. Húsráðendur héldu í ferðalag og við Jóhanna tókum að okkur að passa prinsinn á meðan. Það gengur vel og auðvelt að semja við 4 ára. Fyrsti samningurinn varðaði súkkulaðiköku sem var bökuð í gær og borðuð með bestu lyst.
 

Það er ekki mikið að frétta úr sveitinni en Jóhanna dafnar vel og er farin að brölta upp á hnéin, borðar vel og er að læra að sofna sjálf og markmiðið er að ná því áður en Sigrún Sóley kemur ;)
 

 
Það gengur vel með Brúsk en ég er alveg hætt að gefa nokkuð úr um brottfarardag frá Kína. Það er allt út um allt en sér fyrir endan á flestu. Ég get bara ekki tekið myndir í ruslinu og set inn myndir þegar tiltektin verður hafin.
 
KB